I'd like to schedule a mold consultation.
Algengar spurningar
Ef þú ert að leita að ráðgjöf vegna myglu eða umhverfisveikinda eru tvær leiðir í boði.
LEIÐ 1 - Byrjaðu á vinnustofunni Í SKJÓLI (mælt með)
Í SKJÓLI er tveggja klukkustunda vinnustofa fyrir fólk sem vill öðlast betri skilning á áhrifum myglu og umhverfisálags á heilsuna og fá skýra leið til að vinna að bættri líðan.
Á vinnustofunni förum við yfir hvað getur haft áhrif á líðan og bata, hvernig þessir þættir tengjast og hvaða skref er skynsamlegt að taka næst.
Þú ferð heim með aukinn skilning, skýrari forgangsröðun og hagnýt verkfæri sem þú getur byrjað strax að nýta.
Að vinnustofunni lokinni færðu 3 mánaða aðgang að Í SKJÓLI í appinu mínu, þar sem þú getur haldið áfram með fræðslu, verkefni og verkfæri á þínum hraða.
Ég mæli almennt með Í SKJÓLI sem fyrsta skrefi. Þannig færðu góðan grunn áður en við hittumst í einstaklingsviðtali og getum nýtt þann tíma betur í þínar persónulegu aðstæður.
LEIÐ 2 - Bókaðu einstaklingsviðtal
Þú getur bókað 60 mínútna fjarviðtal beint hjá mér. Þar förum við yfir þínar aðstæður, spurningar og næstu skref.
Þú þarft ekki að hafa sótt vinnustofuna til að bóka einstaklingsviðtal.
Upphafsviðtal 60 mín. | 24.900 kr.
Eftirfylgni viðtal 45 mín. | 19.900 kr.
Í viðtalinu förum við yfir þína stöðu, helstu spurningar og hvað gæti verið skynsamlegt að leggja áherslu á næst.
Viðtalið er einstaklingsmiðuð ráðgjöf og inniheldur ekki aðgang að Í SKJÓLI eða appinu.
Fyrir nýja skjólstæðinga mæli ég almennt með að byrja á Í SKJÓLI, þar sem þú færð grunnfræðsluna, verkfærin og 3 mánaða aðgang að efninu. Þannig nýtist einstaklingsviðtal mun betur í þínar aðstæður, spurningar og næstu skref.
Ef tímasetning næstu vinnustofu hentar þér ekki eða þú þarft einstaklingsmiðaðan stuðning fyrr er hægt að bóka einstaklingsviðtal beint.
Já.
Ef þú ert að glíma við einkenni eftir viðveru í myglu eða rakaskemmdu húsnæði getum við í einstaklingsviðtali farið yfir þína stöðu, þínar spurningar og næstu skref.
Fyrir nýja skjólstæðinga mæli ég þó almennt með að byrja á Í SKJÓLI. Þar færðu grunninn, skilning á því hvað getur haft áhrif á líðan og verkfæri til að vinna markvisst áfram.
Þegar sá grunnur er kominn nýtist tíminn okkar saman mun betur í það sem skiptir máli fyrir þig.
Ef tímasetning næstu vinnustofu hentar ekki eða þú þarft einstaklingsmiðaðan stuðning fyrr er hægt að bóka viðtal beint.
Ef þú ert nýbúin(n) að uppgötva myglu eða rakaskemmdir heima eða á vinnustað og vantar SKÝRAR leiðbeiningar þá getur þú keypt aðgang að MYGLA 101
MYGLA 101 hentar vel ef þú vilt fá grunnfræðslu og skýr fyrstu skref, meðal annars varðandi fyrstu aðgerðir, þrif og hvernig best er að bregðast við þegar mygla eða rakaskemmdir finnast.
Í SKJÓLI hentar betur ef þú ert farin(n) að finna fyrir einkennum eða vilt meiri stuðning, heildarmynd og verkfæri til að vinna markvisst að bata.
Einstaklingsviðtal hentar síðan þegar þú þarft að fara sérstaklega yfir þínar aðstæður, spurningar eða næstu skref.
Nei, námskeiðsaðgangur fylgir ekki sjálfkrafa með einstaklingsviðtali.
Einstaklingsviðtal er 60 mínútna ráðgjöf þar sem við einbeitum okkur að þínum aðstæðum, spurningum og næstu skrefum.
Ef þú vilt fá fræðslu og verkfæri til að vinna áfram á eigin hraða eru tvö námskeið í boði:
MYGLA 101 er örnámskeið sem hentar sérstaklega ef mygla eða rakaskemmdir hafa nýlega fundist og þú þarft skýrar upplýsingar um fyrstu aðgerðir, þrif og hvernig draga má úr krossmengun.
Í SKJÓLI er tveggja klukkustunda vinnustofa fyrir fólk sem vill öðlast betri skilning á áhrifum umhverfisálags á heilsuna og fá hagnýt verkfæri til að styðja við bata. Að vinnustofunni lokinni færðu þriggja mánaða aðgang að fræðslu og verkefnum í appinu.
Þú getur valið það úrræði sem hentar þínum aðstæðum best.
Þegar þú bókar tíma færðu sendan heilsufarsspurningalista sem þú fyllir út fyrir viðtalið. Ég fer yfir svörin þín fyrir tímann svo við getum nýtt tímann okkar sem best.
Viðtalið er 60 mínútna fjarviðtal. Þú færð fundarboð sent fyrir tímann og við getum verið í mynd eða án, allt eftir því hvað þér finnst þægilegra.
Í viðtalinu förum við yfir þína stöðu, helstu spurningar og næstu skref og einbeitum okkur að því sem skiptir mestu máli fyrir þig.
Æskilegt er að þú hafir ró og næði meðan á viðtalinu stendur svo þú fáir sem mest út úr tímanum.
Nei, þú þarft ekki að undirbúa þig sérstaklega.
Þú færð heilsufarsspurningalista við bókun sem ég fer yfir fyrir viðtalið, þannig að ég hef þegar kynnt mér sögu þína þegar við hittumst.
Annars þarftu bara að mæta eins og þú ert. Við finnum út úr næstu skrefum saman.
Mörg stéttarfélög endurgreiða kostnað við ráðgjöf. Ég hvet þig til að kanna það hjá þínu stéttarfélagi.
Bókaður tími er frátekinn sérstaklega fyrir þig.
Afbóka þarf eða færa tíma með minnst 24 klst. fyrirvara.
Sé tíma afbókað með skemmri fyrirvara eða ef ekki er mætt í bókaðan tíma er fullt gjald innheimt fyrir viðtalið.
Tilbúin(n) að taka næsta skref?
Ef þú vilt einstaklingsmiðaðan stuðning getur þú bókað 60 mínútna upphafs viðtal hjá mér eða 30 mín eftirfylgni viðtal.