I would like to book a lifestyle consultation
Algengar spurningar
Ég veiti fjarviðtöl í gegnum tölvu, ég sendi þér fundarboð deginum fyrir viðtal.
Við getum spjallað saman í mynd eða án, allt eftir því hvað þér finnst þægilegra.
Æskilegt er að þú hafir ró og næði til þess að taka fullan þátt í viðtalinu svo að þú fáir sem mest fyrir tímann sem við höfum saman.
Fyrir fyrsta viðtal þá færðu sendan heilsufarsspurningarlista sem ég óska eftir að fá sendan til mín degi fyrir viðtal.
Það hjálpar mér mikið að vita þína sögu þegar við hittumst í fyrsta skiptið og það gerir viðtalið skilvirkara.
Ég vil að þú fáir sem allra mest út úr tímanum okkar saman.
Fyrsta viðtal – 60 mín: 48.700 kr*
Framhaldsviðtal – 50 mín: 28.900 kr
*Fyrir fyrsta viðtal fyllir þú út ítarlegan heilsufarslista sem hjálpar mér að undirbúa tímann vel og fá skýrari heildarmynd af stöðunni þinni.
Innifalið í fyrsta viðtali er aðgangur að einu námskeiði að verðmæti 19.800 kr. Þú getur valið á milli SLÖKUN OG ENDURHEIMT eða í KJARNA
Ef þú hefur þegar keypt annað námskeiðið færist það frá verðI fyrsta viðtals.