Í SKJÓLI


Fáðu skýrari mynd af því hvað er að gerast í líkamanum og hvaða skref þú getur tekið til að styðja við bata eftir myglu og umhverfisálag.

Svona virkar Í SKJÓLI

Fræðslunámskeið og 3 mánaða aðgangur að appinu - fyrir þig sem vilt ná betri átt eftir myglu og umhverfisálag.

Á námskeiðinu færðu skýrari mynd af því hvað getur haft áhrif á líðan þína og hvað skiptir mestu máli í bataferlinu. Farið er yfir grunnstoðirnar fimm: taugakerfið, svefn, mataræði, tengsl og hreyfingu. 

Þú ferð heim með aukinn skilning á því sem líkaminn þinn er að ganga í gegnum, skýr næstu skref og verkfæri sem þú getur byrjað strax að innleiða til að styðja við heilsu þína og bata.

Að fræðslunámskeiðinu loknu færðu 3 mánaða aðgang að fræðslu, verkefnum og verkfærum í appinu, svo þú getir haldið áfram á þínum hraða.

Næstu fræðslunámskeið

REYKJAVÍK 

12. nóvember
kl. 16–18
Endurheimt Heilsumiðstöð

AKUREYRI

14 nóvember
kl. 13-15
Sjúkraþjálfun Akureyrar

LIVE Á ZOOM 

28. nóvember
kl. 13–15
Taktu þátt hvar sem þú ert

Þú ert líklega búin(n) að reyna margt.

Kannski byrjuðu einkennin eftir að þú bjóst eða vannst í rakaskemmdu húsnæði.

Kannski komu einkennin smám saman og enginn gat útskýrt af hverju þér leið svona.

Kannski hefurðu lengi reynt að gera allt „rétt“, breytt mataræðinu, tekið bætiefni og leitað að svörum, en ert samt ekki viss um hvað skiptir mestu máli fyrir þig eða hvað þú átt að gera næst.

Í SKJÓLI er fyrir þig ef


✓ Þú finnur fyrir heilsuleysi eftir viðveru í 
raka- eða mygluskemmdu húsnæði.

✓ Þú finnur fyrir þreytu sem hvíld lagar ekki.

✓ Líkaminn bregst sterkt við lykt, efnum eða ákveðnu umhverfi.

✓ Þú finnur fyrir bakslögum þegar þú reynir að gera of mikið.

✓ Þú hefur leitað hjálpar en upplifir að fá ekki skýrar útskýringar.

✓ Þú vilt fá skýra leið hvernig þú að halda áfram.


Það sem þú ert að upplifa er raunverulegt.

Einkennin geta verið flókin og breytileg, sérstaklega eftir langvarandi álag.

Í Í SKJÓLI lærir þú að sjá heildarmyndina og hvernig þú getur stutt líkamann með rólegri og markvissri nálgun.


Af hverju hefur þetta verið svona erfitt?

Eftir myglu eða annað langvarandi umhverfisálag getur verið erfitt að skilja af hverju líkaminn bregst allt í einu öðruvísi við en áður.

Oft er ekki bara einn þáttur sem þarf að skoða. Svefn, streita, taugakerfið, melting, næring, hreyfing og umhverfið sjálft geta allt haft áhrif á líðan og bata.


Í SKJÓLI hjálpar ég þér að skilja þessi tengsl og sjá hvar þú getur byrjað, án þess að reyna að laga allt í einu.


Við byggjum á fjórum grunnstoðum sem styðja bata og endurheimt.


Heilnæmt umhverfi

Draga úr álagi líkamans


Við lærum hvernig draga má úr útsetningu fyrir þáttum sem geta viðhaldið einkennum og skapað líkamanum betri aðstæður til bata.


Taugakerfið

Meira öryggi og jafnvægi


Þú lærir hvernig streita og langvarandi álag hafa áhrif á líkamann og færð æfingar sem hjálpa taugakerfinu að róast.


Orkustjórnun

Byggja orkuna upp á ný


Raunhæf verkfæri sem hjálpa þér að byggja orkuna upp án þess að lenda í endurteknum bakslögum.


Afeitrun

Næring og enduruppbygging


Svefn, melting, næring og daglegar venjur sem styðja líkamann og skapa betri grunn fyrir bata.


Þú þarft ekki að finna út úr þessu ein(n)

Þú hefur eflaust fengið upplýsingar úr mismunandi áttum, hlustað á hlaðvörp, lesið bækur, skoðað facebook hópa, horft á myndbönd og lesið rannsóknir. Kannski hefurðu jafnvel prófað ýmislegt sem lofaði góðu.

Það sem oft vantar er ekki meiri upplýsingar.

Heldur skýra leið um hvað á að gera næst.

Í Skjóli færðu skýra leið.


Í stað þess að reyna allt í einu færðu leið sem hjálpar þér að einbeita þér að því sem skiptir mestu máli hverju sinni.

01 - ÞÚ MÆTIR Á FRÆÐSLUNÁMSKEIÐ

Við förum saman yfir heildarmyndina á skiljanlegan hátt. Þú færð samhengi, forgangsröðun og skýrari mynd af því hvar þú getur byrjað.

02 - ÞÚ VINNUR Á ÞÍNUM HRAÐA

Næstu þrjá mánuði hefur þú aðgang að Í SKJÓLI í appinu, með skref fyrir skref fræðslu, æfingum og verkfærum sem hjálpa þér að færa þekkinguna inn í daglegt líf.

03 - FÁÐU STUÐNING EF ÞÚ ÞARFT
Að lokinni vinnustofunni hefur þú möguleika á að bóka einstaklingsmiðað stuðningsviðtal hjá mér ef þú vilt aðstoð við að yfirfæra efnið á þínar aðstæður.

BYRJAÐU Á FRÆÐSLUNÁMSKEIÐI
SKILNINGUR OG SKÝR LEIÐ


Við byrjum saman á vinnustofu þar sem þú færð heildarmyndina, betri skilning á því sem getur haft áhrif á líðan þína og hjálp við að sjá hvað skiptir mestu máli að vinna með fyrst.

HALTU ÁFRAM Á ÞÍNUM HRAÐA



Eftir vinnustofuna færðu þriggja mánaða aðgang að Í SKJÓLI í appinu. Þar bíða þín fræðsla, æfingar og verkefni sem hjálpa þér að vinna áfram, skref fyrir skref og á þínum hraða.

FÆRÐU ÞEKKINGUNA INN Í DAGLEGT LÍF


Þú færð einföld og raunhæf verkfæri sem hjálpa þér að yfirfæra fræðsluna á daglegt líf og finna hvað styður best við þína endurheimt.

Í Skjóli færðu meðal annars:

✓ Í SKJÓLI vinnubók
Vinnubók sem fylgir þér í gegnum vegferðina, með verkefnum, spurningum og einföldum skrefum sem hjálpa þér að yfirfæra fræðsluna á þitt eigið líf.  

✓ 2 klst. fræðslunámskeið með Lindu
Við setjum heildarmyndina í samhengi, förum yfir þá þætti sem geta haft áhrif á bata og hjálpum þér að sjá skýrar hvar þú getur byrjað.

✓ 3 mánaða aðgang að Í SKJÓLI í appinu
Fræðsla, æfingar og verkfæri sem þú getur nálgast þegar þér hentar og unnið með á þínum hraða.

✓ Skýra leið áfram
Í stað þess að reyna að breyta öllu í einu færðu hjálp við að forgangsraða og vinna skref fyrir skref með það sem skiptir mestu máli.

✓ Verkfæri sem þú getur notað heima
Leidd slökun, mjúk hreyfing, bandvefslosun, öndun og önnur einföld verkfæri sem styðja við endurheimt og daglegt líf.

✓ Lokað Í SKJÓLI samfélag
Rými fyrir fræðslu, stuðning og samfélag með öðrum sem skilja hvernig það er að takast á við umhverfisveikindi.

✓ Möguleika á einstaklingsmiðuðum stuðningi
Að lokinni vinnustofunni getur þú bókað stuðningsviðtal hjá Lindu ef þú vilt fara nánar yfir þínar aðstæður og næstu skref.

Fræðslunámskeið

Á tveggja tíma fræðslunámskeiði förum við saman yfir heildarmyndina og setjum hlutina í samhengi.

Við skoðum hvað getur gerst þegar líkaminn hefur verið lengi undir umhverfisálagi, hvaða þættir geta haft áhrif á bata og hvernig þú getur byrjað að forgangsraða því sem skiptir mestu máli fyrir þig.

Við komum meðal annars inn á umhverfi og útsetningu, taugakerfið, svefn og orku, meltingu og næringu, hreyfingu og daglegar venjur.

Markmiðið er ekki að þú gangir út með enn lengri lista yfir allt sem þú „ættir“ að gera.

Markmiðið er að þú skiljir betur hvað er að gerast, hvað skiptir máli og hvar þú getur byrjað.

Að vinnustofunni lokinni tekur Í SKJÓLI svo við. Næstu þrjá mánuði færðu aðgang að fræðslu, æfingum og verkfærum í appinu sem hjálpa þér að vinna áfram, skref fyrir skref.

Hæ, ég heiti Linda

Fyrir rúmum áratug breyttist lífið mitt þegar ég veiktist sjálf eftir langvarandi útsetningu í rakaskemmdu húsnæði.

Ég veit því hvernig það er þegar líkaminn hættir skyndilega að haga sér eins og áður, þegar orkan hverfur, þolið minnkar og það sem áður var sjálfsagt verður það ekki lengur.

Sú reynsla breytti líka því hvernig ég starfa sem sjúkraþjálfari.

Síðasta áratug hef ég sérhæft mig í endurhæfingu eftir umhverfisveikindi og unnið með fólki að því að skilja betur hvað er að gerast í líkamanum og finna raunhæfa leið til uppbyggingar.

Í SKJÓLI byggir á:

• yfir 20 ára klínískri reynslu sem sjúkraþjálfari
• áratug af sérhæfingu í umhverfisveikindum
• faglegri þekkingu og klínískum leiðbeiningum
• minni eigin reynslu af bataferli


Ef Í SKJÓLI getur hjálpað þér að finna skýrari leið fyrr en ég gerði, þá hefur námskeiðið náð tilgangi sínum.

Þess vegna varð Í SKJÓLI til.

Markmiðið er ekki að gefa þér enn einn listann yfir allt sem þú „ættir“ að gera, heldur að hjálpa þér að átta þig á hvað skiptir máli og hvar þú getur byrjað.

Hér eru svör við spurningum sem margir velta fyrir sér áður en þeir byrja. 


Í Skjóli er fyrir einstaklinga sem finna fyrir einkennum eftir myglu í rakaskemmdu húsnæði eða eftir annað umhverfisálag. Leiðin hentar þeim sem vilja skilja betur hvað er að gerast í líkamanum og fá skýra, raunhæfa leiðsögn til að byggja sig upp aftur.



Nei. Þú þarft ekki að vera með formlega greiningu. Í SKJÓLI er ætlað fólki (eða aðstandendum) þeirra sem hefur fundið fyrir breytingum á heilsu í tengslum við myglu, raka eða annað umhverfisálag og vill öðlast betri skilning á stöðunni og hvað það getur gert næst.


Þú getur byrjað strax.

Á námskeiðinu er sérstakur kafli (Styrkur í storminum) þar sem eru leiðbeiningar hvernig þú getur byrjað að huga að heilsunnni þrátt fyrir að vera enþá í rakaskemmdu húsnæði (vinna, heimili).

Einnig er farið yfir það að hverju skal huga þegar framkvæmdir eru í vændum til að hindra krossmengun og fleira.


Námskeiðið er 2 klst. og getur farið fram á staðnum eða LIVE á Zoom. Við förum yfir heildarmyndina, setjum helstu þætti sem geta haft áhrif á bata í samhengi og skoðum hvar þú getur byrjað. 

Markmiðið er að þú farir frá vinnustofunni með meiri skilning, skýrari forgangsröðun og raunhæf næstu skref.


Það er mjög skiljanlegt að hafa áhyggjur af því. Í raun er leiðin sérstaklega hönnuð með það í huga. Þú þarft ekki að gera allt í einu. Efnið er brotið niður í lítil og raunhæf skref svo þú getir farið á þínum eigin hraða án þess að upplifa óþarfa pressu.

Þú færð aðgang að efninu á appinu í 3 mánuði eftir skráningu.

Þú getur farið á þínum hraða og leitað aftur í efnið hvenær sem þú þarft.


Vinnustofan sjálf er 2 klst. Eftir hana færðu aðgang að Í SKJÓLI í 3 mánuði og vinnur áfram á þínum hraða. Þú þarft ekki að fylgja stífri dagskrá, markmiðið er að þú getir nýtt fræðsluna og verkfærin á þann hátt sem hentar þinni orku og þínu daglega lífi.


Markmið Í SKJÓLI er ekki að selja þér vörur heldur að hjálpa þér að skilja hvað skiptir mestu máli fyrir þig.

Á námskeiðinu er sérstakur kafli um bætiefni sem styðja við ferlið og þessi bætiefni hafa hjálpa mögum að flýta afeitrun, opna á sogæðakerfið og bæta meltinguna og orkuna.

Sjálf fann ég mesta muninn á mér þegar ég tók til í mataræðinu mínu og bætti inn bætiefnum og ég mæli með því en geri enga kröfu á fylgja bætiefna prótakól.

Þátttakendur fá afslátt af vörum hjá Heilsubarnum á meðan námskeiði stendur.

Já. Að lokinni Í SKJÓLI fræðslunámskeiðs getur þú bókað einstaklingsmiðað stuðningsviðtal hjá Lindu ef þú vilt fara betur yfir þínar aðstæður og fá aðstoð við að ákveða næstu skref.
Hafir þú áður verið í ráðgjöf hjá Lindu getur þú áfram bókað viðtal eins og áður.


Í SKJÓLI fræðslunámskeiðin  eru haldnar reglulega, bæði á staðnum og LIVE á Zoom. Ef dagsetningin sem þú varst að skoða hentar ekki getur þú valið aðra vinnustofu sem passar betur.

Einnig velkomið að senda mér póst á skrefid@skrefid.is og óska eftir frekari upplýsingum um næstu vinnustofur. 


Umsagnir þátttakenda Í SKJÓLI

Byrjaði að taka markviss skref í átt að bata



Í Skjóli gaf mér loksins skýra leiðsögn um mataræði, bætiefni og hvernig ég gæti stutt líkamann eftir myglu. Ég fékk betri skilning á því sem var að gerast og gat loksins byrjað að taka markviss skref í átt að bata. Með stuðningi Lindu náði ég meira að segja að komast aftur af stað í hreyfingu.

- Sigurlaug

Ég fór mun meðvitaðri og jákvæðari út úr námskeiðinu


Frábært námskeið sem gerði mikið fyrir mig. Ég fór mun meðvitaðri og jákvæðari út úr því. Ég hef prófað mörg námskeið, en námskeiðið hjá Lindu stendur klárlega upp úr. Nærvera hennar og hlýja skapa einstakt öryggi. Ég mæli heilshugar með því.

- Guðlaug