SLÖKUN OG ENDURHEIMT
Meiri orka og aukið streituþol með skýrum og öruggum skrefum á netaðgangi.
Lærðu að þekkja þitt taugakerfi og þína streituvalda og þá fyrst læriru að það er í lagi að sýna þér mildi.
Þú veist alveg hvað þú þarft að gera.. en hér færðu verkfærin sem hjálpa þér.
Þú færð aðgang að:
Fræðsla til að skilja og kynnast taugakerfinu
Leiddum hugleiðslum (á íslensku).
Myndbandsupptökum af bandvefslosun með bolta
Vagus æfingum til að róa taugakerfið
Rólegum heimaæfingum undir leiðsögn sjúkraþjálfara
Lista yfir bjargráð sem þú getur nýtt þér strax - í mildi.
Ég hef sjálf verið í þínum sporum, orkulaus, streitt og með svefnerfiðleika
Eftir að ég fór að sýna mér meira mildi þá fyrst fann ég að streitan varð minni og mér fór að líða betur. Það var enginn að setja þessa pressu á mig nema ég sjálf. Þú kannski ert á sama stað?
Það getur verið ótrúlega hughreystandi að vilta að þú ert ekki ein(n) og að það eru til einföld skref til þess að auka orkuna og gleði.
Ég hef starfað sem sjúkraþjálfari í tæp 20 ár og hef undanfarin ár verið að bæta við mig menntun í Functional Medicine þar sem lögð mikil áhersla á að horfa á líkamann sem eina heild. Ég er þakklát fyrir að geta deilt áfram minni þekkingu því ég veit á eigin skinni að þessi skref virka.
Afhverju þetta námskeið?
Hentar þér ef þú ert að upplifa streitu í lífinu þínu og vantar fyrstu skref í átt að meiri orku og bættri líðan.
◦ Þú vilt geta lagst útaf á kvöldin og hlustað á róandi hugleiðslur
◦ Þú vilt læra að þekkja þína streitu "kveikjur"
◦ Þú vilt læra betur inn á hvað hjálpar þér að róa taugakerfið
◦ Vilt faglega, hlýja og raunhæfa leiðsögn
Þróað af sjúkraþjálfara með áherslu á að róa taugakerfið.
Ég veit að það getur verið erfitt að taka fyrsta skrefið. Markmið mitt er að styðja þig í að endurheimta heilsuna, orkuna og jafnvægið með skrefum sem virka.
Hvernig er námskeiðið uppbyggt?
Þú færð aðgang að netnámskeiði sem þú getur opnað sem app í símanum þínum eða í tölvunni þinni. Þú færð aðgang að námskeiðinu í 3 mánuði við skráningu.
Get ég tekið námskeiðið á mínum hraða?
Já 🤎 Námskeiðið er hannað þannig að þú getur farið í gegnum efnið á þínum hraða og valið það sem þú hefur rými fyrir hverju sinni.
Þú þarft ekki að gera allt í einu og getur alltaf snúið aftur í efnið þegar þér hentar. Markmiðið er að styðja þig, ekki skapa pressu.
Fáðu aðgang strax í dag