Einstakling ráðgjöf

Myglu ráðgjöf

Fjarviðtal - 60 mín

Ég býð upp á einstaklings viðtöl fyrir þá sem þurfa leiðbeiningar ef upp hefur komið mygla á heimili eða á vinnustað, farið er yfir mjög skýr skref sem þarf að hafa í huga til að hindra kossmengun í upphafi og á meðan framkvæmdum stendur. Farið er yfir þrif eftir framkvæmdir og ýmis hagnýt ráð til að fyrirbyggja að mygla myndist aftur.

Ég veiti einnig einstaklings ráðgjöf og stuðning fyrir fólk í bata eftir umhverfisveikindi.

Óska eftir tíma

Já!

Þú ert komin á réttan stað og ég skal leiða þig skref fyrir skref í átt að meiri orku og bata. Ég hef sjálf verið í þínum sporum og veit hversu ruglingslegt það getur verið að fá misvísandi skilaboð, hvar á að byrja, hvaða bætiefni á að taka - og í hvaða röð..

Ég fer yfir þetta allt með þér skref fyrir skref.

Með þessu viðtali færðu aðgang að örnámskeiðinu mínu Mygla 101

Ég veiti ráðgjöf við fyrstu skref ef upp kemur grunur eða staðfesting á að mygla sé til staðar. Hvort sem það er í eigin húsnæði eða á vinnustað.

Ráðgjöfin er sniðin að hverju og einu verkefni.

Já!

þú færð 3 mánaða aðgang að námskeiðinu MYGLA 101, þar getur þú leitað í upplýsingar aftur og aftur eftir því hvar þú ert í ferlinu.

Mygla 101

örnámskeið:

- Hvað er mygla?

- Hver eru einkenni?

- Hindrun krossmengun

- Myglu þrif (pdf listi)

..og margt fleira..

Þeir sem hafa þegar keypt námskeiðið MYGLA 101 fá sérstakt verð á fyrsta viðtali. Vinsamlega taktu það fram þegar þú óskar eftir tíma.

Ég hvet þig til þess að athuga hjá þínu stéttarfélagi hvort að tíminn sé niðurgreiddur.

Lífstíls og heilsuráðgjöf

Fjarviðtal - 60 mín

Vilt þú finna orkuna þína aftur og kraft?

Við förum yfir stöðuna saman og kortleggjum skref sem styðja þig í að byggja upp orku og finna aftur jafnvægi.

Þú færð skýra, einstaklingsmiðaða leiðsögn sem er bæði raunhæf og framkvæmanleg, án þess að þú þurfir að umturna lífinu þínu.

Óska eftir tíma

Fyrir þig sem upplifir orkuleysi, einkenni kulnunar eða hefur misst tengsl við eigin kraft.

Ef þú hefur prófað margt sem ekki hefur virkað og ert tilbúin að stíga inn í nýja nálgun, með skýrri leiðsögn í átt að meiri orku, jafnvægi og vellíðan.

Já!

Þú færð aðgang að örnámskeiðinu SLÖKUN OG ENDURHEIMT

- leiddar hugleiðslur

- slökunar æfingar (myndbandsupptaka)

- Vagus æfingar

- Bandvefslosun (myndbandsupptaka)

Ef þú hefur nú þegar keypt aðgang að ör námskeiðinu eða ert þátttakandi á námskeiðinu Í KJARNA þá fæð þú sérstök kjör af einstaklings ráðgjöf. Taktu það fram þegar þú óskar eftir tíma.

Það er því miður ekki eitt ákveðið svar við þessu, því hver og ein er á sinni eigin vegferð. Fyrir suma getur 1 tími í mánuði verið nóg til að upplifa jákvæða breytingu á líðan, á meðan aðrir þurfa meiri eftirfylgni í byrjun.

Ég legg mikla áherslu á einstaklingsmiðaða og heildræna nálgun. Vegferð í átt að meiri orku og bata er ferli sem tekur tíma, og krefst þess að þú sért tilbúin(n) að taka virkan þátt í eigin heilsu.

Í okkar samstarfi geng ég með þér skref fyrir skref, veiti þér skýra leiðsögn og styð þig í gegnum ferlið.

Árangurinn byggir þó á því að þú sért tilbúin(n) að vinna í þínum málum og innleiða þær breytingar sem við förum í saman.

Ef þú ert tilbúin að taka það skref, þá er ég hér til að styðja þig á leiðinni. ✨

Mög stéttarfélög taka þátt í kostnaði hjá menntuðum heilbrigðisstarfsmanni. Kannaði það hjá þínu stéttarfélagi.

Næringar og Meltingar stuðningur

Fjarviðtal - 60 mín

Ég hjálpa fólki sem er að glíma við uppþembu, niðurgang, hægðartregðu eða óþægindi tengd meltingu. Lögð er áhersla á að næra líkamann með næringarríkum mat, bæta meltinguna og græða þarmavegginn.

Óska eftir tíma

Næringar og meltingarstuðningur er fyrir þig ef þú ert að glíma við óþægindi tengd meltingunni og vilt fá skref fyrir skref leiðsögn og stuðning.

*Mikilvægt er að þeir sem leita til mín hafi útilokað undirliggjandi kvilla hjá meltingarlækni áður en að stuðningur frá mér hefst.

Já!

Þú færð aðgang að námskeiðinu BÆTT MELTING - EINSTÖK HEILSA

- fæðuflokkarnir (fyrirlestur)

- blóðsykurstjórnun

- þarmaflóran og andleg líðan (fyrirlestur)

- uppskriftabók með viku matseðli og innkaupalista

- og fleira..

Ef þú hefur þegar keypt aðgang að námskeiðinu þá færð þú sérstök kjör af fyrsta viðtali. Taktu það fram þegar þú óskar eftir tíma.

Það er misjafnt eftir því hvert verkefnið er, mörgum finnst gott að hitta mig vikulega til að byrja með og fækka svo skiptunum niður í mánaðalega eftir því hvað gengur vel að innleiða breytingar.

Mikilvægt er að þú sért tilbúin(n) að taka virkan þátt í að gera þær breytingar á venjum sem þörf er á.

Heildræn nálgun

Ef eitt kerfi vinnur ekki rétt þá hefur það áhrif á allan líkamann. Við getum hugsað þetta eins og mörg tannhjól sem vinna saman, ef eitt bilar þá hefur það áhrif á hin tannhjólin líka.

Ég er ótrúlega spennt og þakklát fyrir vinnuna mína og get í einlægni sagt að ég er heppin að vinna við mitt helsta áhugamál.

Takk fyrir traustið.