Óska eftir meltinga stuðningi

Upphafsviðtal: 48.900kr

- Ítarlegur heilsufarsspurningarlisti fyrir viðtal

- 60-80 mín ráðgjöf

- Aðgangur að SIBO örnámskeiði*

Ég vinn með þessa þrjá þætti saman því reynslan hefur sýnt að þeir skapa mun betri forsendur fyrir árangri en ráðgjöf ein og sér.

*Ef þú ákveður innan 30 daga að halda áfram í námskeiðið Í SKJÓLI eða Í KJARNA færist andvirði örnámskeiðs að fullu yfir.

Eftirfylgni viðtal: 28.900kr



Næringar og meltingarstuðningur er fyrir þig ef þú ert að glíma við óþægindi tengd meltingunni og vilt fá skref fyrir skref leiðsögn og stuðning.

*Mikilvægt er að þeir sem leita til mín hafi útilokað undirliggjandi kvilla hjá meltingarlækni áður en að stuðningur frá mér hefst.

Ég veiti fjarviðtöl í gegnum tölvu, ég sendi þér fundarboð deginum fyrir viðtal.

Við getum spjallað saman í mynd eða án, allt eftir því hvað þér finnst þægilegra.

Æskilegt er að þú hafir ró og næði til þess að taka fullan þátt í viðtalinu svo að þú fáir sem mest fyrir tímann sem við höfum saman.

Fyrir fyrsta viðtal þá færðu sendan heilsufarsspurningarlista sem ég óska eftir að fá sendan til mín degi fyrir viðtal.

Það hjálpar mér mikið að vita þína sögu þegar við hittumst í fyrsta skiptið og það gerir viðtalið skilvirkara.

Ég vil að þú fáir sem allra mest út úr tímanum okkar saman.

Já!

Þú færð aðgang stuðnings efni á appi.

- fæðuflokkarnir (fyrirlestur)

- blóðsykurstjórnun

- þarmaflóran og andleg líðan (fyrirlestur)

- uppskriftabók með viku matseðli og innkaupalista

- ýtarleg SIBO masterclass fræðsla

- og fleira..

Ef þú hefur þegar keypt aðgang að námskeiðinu þá færð þú sérstök kjör af fyrsta viðtali. Taktu það fram þegar þú óskar eftir tíma.

Það er misjafnt eftir því hvert verkefnið er, mörgum finnst gott að hitta mig vikulega til að byrja með og fækka svo skiptunum niður í mánaðalega eftir því hvað gengur vel að innleiða breytingar.

Mikilvægt er að þú sért tilbúin(n) að taka virkan þátt í að gera þær breytingar á venjum sem þörf er á, ég styð þig alla leið.

Fylltu út formið og ég hef samband við þig eins fljótt og auðið er og við finnum tíma sem hentar.

Ég hef samband við þig innan 1–2 virkra daga og finnum saman tíma sem hentar.

Í skilaboðunum geturðu tekið fram hvort þú viljir að ég hafi samband í síma eða með tölvupósti.

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt koma einhverju á framfæri er þér velkomið að skrifa það þar.

Að senda inn fyrirspurn er ekki skuldbindandi.

Ég hef fyrst samband við þig og þegar við höfum fundið tíma sem hentar færðu greiðsluupplýsingar. Greiðsla fer fram áður en viðtalið.