Í KJARNA
6 vikur fyrir þig
STYRKUR · ORKA · SAMFÉLAG
Hefst 1. september kl. 17:30
Langar þig að finna aftur kraftinn í þér?
Verða sterkari, hreyfa þig meira, fá meiri orku og koma góðum venjum aftur inn í lífið, án þess að þurfa að gera allt fullkomlega?
Í KJARNA snýst minna um að læra hvað þú „ættir“ að gera og meira um að gera það í alvörunni.
Í sex vikur hittumst við einu sinni í viku í litlum hópi, hreyfum okkur saman, byggjum upp styrk og gefum okkur tíma til að hægja á þegar þess þarf.
Á milli hittinga færðu einföld skref fyrir vikuna og aðgang að Í KJARNA netnámskeiðinu þar sem þú getur sótt þér meiri fræðslu um svefn, næringu, streitu, hreyfingu og endurheimt.
Engar öfgar. Engin krafa um fullkomnun. Bara sex vikur þar sem þú setur þig framar á listann.
Næsta námskeið hefst 2 sept og kennt er á þriðjudögum kl 17:30-19:00
- hámark 10 í hvern hóp.
Á sex vikum ætlum við að vinna að því að þú...
Í námskeiðinu færðu meðal annars:
✓ 6 × 90 mínútna KJARNA-tíma í Endurheimt
Fjölbreytt hreyfing þar sem við vinnum með styrk, úthald, liðleika og endurheimt.
✓ Eitt einfalt fókusatriði í hverri viku
Lítil, raunhæf skref sem hjálpa þér að koma góðum venjum inn í daglegt líf.
✓ Aðgang að Í KJARNA netnámskeiðinu í 3 mánuði
Fræðsla um næringu, svefn, streitu, hreyfingu og endurheimt sem þú getur nálgast þegar þér hentar.
✓ Lokaðan hóp fyrir konurnar í Í KJARNA
Pepp, stuðningur og stemning á milli tíma.
✓ Sameiginlega útiveru á námskeiðstímanum
Við hittumst einu sinni utan Endurheimtar og gerum eitthvað skemmtilegt saman.
✓ Æfingar og verkfæri sem þú getur gripið í heima
Mobility, bandvefslosun, slökun og einfaldar leiðir til að hugsa betur um líkamann.
Kannast þú við þig?
Þú veist í raun alveg hvað þú ættir að gera.
Þig langar að hreyfa þig meira, borða aðeins betur, sofa betur og hugsa betur um þig, en einhvern veginn er alltaf eitthvað annað sem gengur fyrir.
Þú ert kannski dugleg í smá tíma, dettur svo úr rútínu og þarft aftur að byrja upp á nýtt.
Þig langar ekki í enn eitt átakið.
Þig langar bara að komast í góðan gír aftur, verða sterkari, fá meiri orku og líða vel í eigin líkama.
Þá gæti Í KJARNA verið akkúrat fyrir þig.
Ertu enn að velta einhverju fyrir þér?
Já, ef þig langar að hreyfa þig meira, verða sterkari, fá meiri orku og koma góðum venjum aftur inn í lífið. Þú þarft ekki að vera í góðu formi þegar þú byrjar, tímarnir eru byggðir þannig upp að hægt sé að aðlaga æfingar að mismunandi getu.
Við hittumst einu sinni í viku í 90 mínútur í Endurheimt. Tímarnir eru fjölbreyttir og við vinnum meðal annars með styrk, úthald, liðleika og endurheimt. Það verður líka pláss fyrir spjall, fræðslu og síðast en ekki síst, góða stemningu.
Nei. Þú þarft hvorki að vera í góðu formi né vön líkamsrækt. Þú byrjar þar sem þú ert og ég hjálpa þér að finna æfingar og álag sem hentar þér.
Sex vikulega 90 mínútna KJARNA-tíma, aðgang að Í KJARNA netnámskeiðinu í þrjá mánuði, vikuleg fókusatriði, lokaðan hóp og sameiginlega útiveru á námskeiðstímanum.
Nei. það eru engin boð eða bönn. Við skoðum frekar einfaldar breytingar sem geta hjálpað þér að borða betur í þínu daglega lífi.
Þú færð uppskriftabók með einföldum hollum uppskriftum.
Fasti tíminn er 90 mínútna KJARNA-tíminn einu sinni í viku. Netnámskeiðið og annað efni notar þú eins mikið eða lítið og hentar þér. Þetta á ekki að verða annað verkefni á verkefnalistanum.
Þú heldur áfram með hópnum vikuna á eftir og getur nýtt þér efnið í netnámskeiðinu á milli. Þar eru upptökur af styrktaræfingum, mjúkum flæðisæfingum, bandvefslosun og fleira.
Hámark 10 konur eru í hverjum hópi. Hópurinn er viljandi lítill svo ég geti fylgst vel með hverri og einni, en samt nógu stór til að skapa góða stemningu og samfélag.
Að loknu námskeiði er boðið upp á framhalds námskeið.
Upplifun þátttakenda Í KJARNA
Vikulegi KJARNA-tíminn
Einu sinni í viku hittumst við í Endurheimt og hreyfum okkur saman.
Miðvikudagar kl. 17:30–19:00
Beint eftir vinnu, svo kvöldið er ennþá þitt.
Tímarnir eru fjölbreyttir og blanda saman fræðslu, styrk, þoli, liðleika og endurheimt. Við vinnum með allan líkamann, prófum ólíkar æfingar og endum tímann á leiddri slökun.
Þú mætir eins og þú ert, hreyfir þig, hlærð og ferð heim ánægð með að hafa komið.
Hæ - ég heiti Linda
Ég er sjúkraþjálfari og hef unnið við heilsu og hreyfingu í yfir tuttugu ár.
En ég er líka bara mjög hrifin af því að hreyfing sé skemmtileg.
Ég hef kennt hóptíma í mörg ár og það sem mér finnst alltaf jafn gaman að sjá er hvað góður hópur getur gert mikið. Þú mætir kannski þreytt eftir vinnu og nennir þessu varla, en ferð svo heim miklu hressari og ánægð með sjálfa þig fyrir að hafa komið.
Það er svolítið hugsunin á bak við Í KJARNA.
Mig langaði að búa til námskeið fyrir konur sem vilja hugsa betur um sig, verða sterkari og fá meiri orku, en nenna hvorki öfgum né að láta heilsuna verða að fullu starfi.
Við ætlum að hreyfa okkur, styrkja líkamann, koma góðum venjum inn í daglegt líf og læra aðeins betur hvað virkar fyrir okkur.
Svo ætlum við líka bara að hafa gaman af þessu.
Þú þarft ekki að mæta í toppformi.
Þú þarft ekki að vera „heilsumanneskja“.
Þú þarft bara að mæta.
Ég sé um restina.